Anton á afmæli!!!
30.11.09
Sæti strákurinn minn hann Anton á afmæli í dag! Kappinn orðin 6 ára gamall og ber aldurinn einkar vel. Hrópum 6 fallt húrra fyrir Antoni!!


Svo fékk Anton snjó í afmælisgjöf því það snjóaði þessum lika fína jólasnjó deginum áður, strákunum til mikillar gleði!

Að gefnu tilefni 25.11.09
Að gefnu tilefni langar mig að birta neðagreint vottorð hér um hundinn minn Max, fyrst að það virðist vera e-h miskilingur og sögur í gangi ;) Nánari upplýsingar má svo fá hjá mér varðandi málið og almennt um mína hunda.
- Sjá vottorð



Studio myndir
09.11.09

Við fórum með hvolpanna hennar Allý, mömmuna Issey, svo Mika pabba og Úlla í myndatöku í bílskúrsstúdío hjá vinafólki hennar. Myndirnar lukkuðst mjög vel til, og þetta var bara gaman! Sjá Myndagallerý frá Studio myndatökunni Hé


Úlli í hvolpaskóla 9.11.09
Úlli og ég erum að byrja í hvolpaskóla í kvöld og hlakkar okkur mikið til :) Hann á örugglega eftir að standa sig með príði!



Október Sýning
5.10.09
Mika var skráður á Októbersýninguna. Hann fékk Excellent og 1 sæti í unghundaflokki. Hann hagaði sér, litli óþekki ormur, eins og á afmælissýningunni, sýndi sig því miður ekki, sem er svo mikil synd, en það kemur! Fékk frábæran dóm... Mikið hól fyrir byggingu, höfuð, feld og snyrtingu.

Suri hennar Allýar sem ég snyrti gekk ljómandi vel, og varð íslenskur meistari og besti hundur tegundar!

Pabbi hans Mika hann Pepsi fékk meistarastigið á stóru Tibethund sýningunni í Svíþjóð og er þar með orðin sænskur meistari! Náfrændi hans Mika, hann Morgan varð Besti hundur tegundar og sýningar, 3 árið í röð!

Hvolparnir 2 vikna! 22.9.09

Fínu hvolparnir undan Mika og Issey eru orðnir 2 vikna og búnir að opna augun. Æðislegir og mamma þeirra er svo yndisleg og dugleg. Sjá nýja heimasíðu Leone Cane´s ræktunnar.



Frábær árangur!
22.9.09
Miig langar til að nota tækifærið og óska Ullu til hamingju með Bos á sérsýningu Shih Tzu í Finnlandi með Pepsi (föður Mika) og Ta Maria ræktun með Bob á Tiramisu. Svo einnig vil ég óska Matthew til Lukku með Niilo (gobróðir Mika) Hann varð Bos með meistarastig í Englandi! Skaut öllum eldri rökkunum og meisturunum ref fyrir rass i harðri samkeppni. Frábærir fulltrúar sinnar tegunar, sannir Shih Tzuar af réttri tegundargerð!

Bettan 14.09.09

Þetta er hin fagra Bettan 'Perluskins Because I´m A Princess.' Hún er einkadóttir hans Max. Bettan Býr í Svíþjóð hjá Margaretu Hansen sem ræktaði mömmu hennar. Ótrúlega flott tík með æðislegan feld. Bettan ásamt bræðrum hennar verða tveggja ára 16.09 og vill ég nota tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með daginn!

Nýjar myndir af Úlla 12.09.09

Nú er Úlli að verða 11 vikna og af því tilefni tók hún Allý fallegar myndir af guttanum fyrir mig sem má sjá í albúminu hans .

Fjórir Hvolpar fæddir! 09.09.09

4 yndislegir hvolpar fæddust 08.09.09. undan Issey hennar Allýar og munu þeir bera ræktunarnafnið Leone-Cane´s. 1 tík og 3 rakkar. Stoltur faðir hvolpanna er Mika! Ættbók þeirra má sjá hér. Fleiri myndir og upplýsingar seinna.

Sætar systur 29.8.09

Sæt mynd af systrunum Serenu og Önju í Tjarnarkoti, undan Mika og Lottu. 8,5 vikna á mynd.

Ulli er komin! 24.8.09

Velkomin heim Úlli! Í dag fór ég Norður að ná í nýjasta fjölskyldumeðliminn, hann Úlla. Hann stenst sko allar mínar væntingar og vel það! Einstaklega fallegur og skemmtilegur hvolpur. Skottið alltaf uppi, fór strax í það að leika við hina hundanna og þá tók Mika sérstöku ástfóstri við soninn :) Anton og Max finnst hann pínu hættulegur og halda sig í hæfilegri fjarlægð þó hún sé að minnka.

Mig langar að þakka Rúnu kærlega fyrir, ekki er leiðinlegt að fá svona fínan hvolp!


Sýningin! 22.8.09
Mika fékk góða dóma á fyrsta degi afmælissýningarinnar um helgina. Excellent, 1 sæti og meistaraefni í Unghundaflokki. Og varð svo annar besti rakki! Duglegi Mika þó hann hafi verið með smá athyglistbrest þann daginn híhí :) Dómurinn hans var mjög flottur, takk til dómarans Helle Dan frá Danmörku :) Fengum m.a. í dóm Masculine. Very well matured. Exl. Type. Good shape of head. Good muzzle + bite. A little prominent eyes. Lovely neck
Good shoulders. Good coat and temperament
... og svo rúsínan í pulsuendanum
"Slightly low on legs" En ég þakka guði fyrir að hann sé lágfættur eins og segir í standard hehe, pínu fyndið :D

Á sunnudeginum mættum við aftur til leiks hjá heldur betur hörðum dómara! Kari J frá finnlandi. Mika fékk excellent og 1 sæti i ungliða og flottan dóm. Engin rakki komst áfram að þessu sinni, og aðeins 3 tíkur.
Takk allir fyrir skemmtilega helgi!!


Hvolpaskoðun!
22.8.09
Hvolpaskottin undan Mika og Lottu fóru í hvolpaskoðun á dögunum sem kom mjög vel út :) Hægt er að sjá myndir frá henni inn á perluskins síðunni


Hvolpaheimsókn 7 og 8 vikna
Ég fór norður sl. helgi að kíkja á hvolpaskottin 11 í síðasa sinn saman. Það eru blendnar tilfinningar sem fylgja, því þetta er búið að vera mjög skemmtilegt að fylgjast með þeim vaxa og dafna og fá að koma reglulega í heimsókn að kikja á barnabörnin, en mér finnst ég vera rosalega rík :) Hægt er að sjá fleiri myndir á www.perluskins.com




Nú var komið að Kimí 10.8.09
Mika bræður hafa aldeilis verið að sýna hvað í þeim býr. Á stóru Rönneby sýningunni í Svíþjóð fékk Kimi meistarastigið í harðri samkeppni. Flott hjá honum! sjá mynd af kappa hér!



Hvolpar heimsóttir, 5 & 6 vikna
5.8.09
Ég lagði leið mína norður á ný að skoða hvolpasnúllurnar og mynda þá. Antons-got er 6 vikna og Mika-got er 5 vikna. Algjörar dúllur! og hafa þroskast vel. Ég þreyfaði og fann vel fyrir kúlunum hjá öllum rökkunum, sem voru komnar niður eða langleiðina í pungsa, flott hjá svona ungum guttum :D


Úlli er prinsinn sem ætlar að bætast við í strákahópinn minn og heitir hann í ættbók 'Perluskins Everyones Fantasy' og er sonur hans Mika 'Ta Maria Beat The Fantasy.' Þannig að þetta verða Fantasíu feðgar. Hægt er að sjá myndir sem ég tók af hvolpunum í albúminu þeirra

Flottir bræður 27.7.09
Niiloo gotbróðir hans Mika sem býr í Bretlandi, gerði sér lítið fyrir og vann junior Class flokkinn á stóru Leeds sýningunni og voru þar 15 hundar í þeim flokki sem kepptu við hann og hörð samkeppni. Hann varð einnig qualified fyrir Crufts!! Frábært hjá honum, flottir bræður þetta og ekki eru hvolparnir þeirra síðri:)


Til hamingju með 4 ára afmælið Max! 27.7.09



Stækka og dafna! 23.7.09

Hvolparnir stækka og dafna og fór ég norður í gær til Rúnu að skoða krílin, sem eru alveg æðislega sæt! MJög flottir hvolpar! Einn litli álfurinn, rakki undan Mika ætlar að búa hjá mér! Myndir af hvolpunum á www.perluskins.com



Myndir frá sýningunni! 2.7.09
Komnar eru inn flottar myndir frá sýningunni um helgina af Mika hér og svo af öllum Shih Tzuunum Hér


Mika Besti hundur tegundar með meistarastig! 29.6.09
Mika "Ta Maria Beat The Fantasy" heillaði dómarann á sumarsýningu HRFí og varð Besti hundur tegundar með meistarastig úr Unghundaflokki aðeins 15 mánaða gamall :-) Dómari Guy Jeavons, Kanada. Myndir af Mika á sýningunni hér


Mika stóð sig eins og hetja og sýndi sig eins og draumur, fær sko gott að borða í kvöld! Von er á að hans fyrstu hvolpar fæðist nú um helgina. En gaman er að segja frá því að frændi hans hann Max, var BHT á sl. tveimur sumarsýningum þannig að farandbikarinn kom aftur heim:)

Tumi "Tíbráar Tinda Tígurinn Tumi" Labrador sýndi á Laugardaginn og fékk excellent og endaði sem þriðji í opnum flokki með rosa flottan dóm:-)

Mika hvolpar fæddir! 29.6.09
Fyrstu hvolpar Mika eru fæddir!! 3 tíkur og og 2 rakkar. 3 eru gull og hvítir eins og mamman og tveir eru svartir og hvítir eins og pabbinn. Mamman er Lotta "Perluskins All I Can wish For" og heilsast þeim vel!! Sjá hvolpasíðuna þeirra og myndir hér



Antons hvolpar fæddir! 21.6.09
7 hvolpar fæddust hjá Perluskins ræktun 21.6.09 . 3xstelpur og 4xstrákar! Því miður lést einn rakkinn eftir örfáa tíma því það fór svo mikið fæðingarvatn í lungun:( Móðir og hvolpum heilsast vel, og eru systkinin afskaplega falleg! Stoltir foreldrar eru Rut og Anton. Sjá myndir hér


Nýjar myndir af Mika 11.6.09
Tókum nýjar uppstillimyndir af Mika sæta nú 1,5 ára myndardrengur. Hægt er að sjá fleiri myndir í albúminu hans



Anja Björg Copyright 2010