Úlli Íslenskur meistari, Besti hundur tegundar með CACIB og meistarastig 20.11.2011
Flotti strákurinn okkar hann Úlli (Perluskins Everyone's Fantasy) sonur hans Mika og dóttursonur, sýndi hvað í honum býr á alþjóðlegu sýningunni um helgina hjá Finnska dómaranum Saija Juutilainen. Hann varðíslenskur meistari og Besti hundur tegundar, fékk CACIB og síðasta meistarastigið sitt. Bertha (Ta Maria Wot a Bee) okkar vann flokkinn sinn ungliða með excellent og CK og varð þriðja besta tík tegunar! was bara 11 mánaða gömul. Umsagnir undir Show time .

Ulli fór einnig í augnskoðun og var CLEAR eða hreinn af augnsjúkdómum, einnig Primo og Bangsi!!



Hvolpar fæddir undan Úlla og Tee-Wee 11.11.2011

5 hvolpar fæddust 11.11.11.
Hjá Paradise passion ræktun. pabbinn er Úlli
(ISCh Perluskins Everyone's Fantasy) og mamman Tee-Wee (Danilos Prelude Promising Girl) sem hefur unniðof 2 meistarastig & cacib. Minnsti strákurinn sem kom síðastur dó því miður fljótlega en hinir hvolparnir þyngjast og dafna vel, 1 stelpa og 3 strákar. Ættbók hér



Ulli BESTI HUNDUR SÝNINGAR á opinni sýningu
30.10.2011
.. Shih Tzu og Yorksire Terrier deildar!

Ulli 'Perluskins Everyone´s Fantasy'
Besti hundur tegundar , Besti Shih Tzu sýningar og Best hundur sýningar.

Berthan okkar'Ta Maria Wot a Bee'
3. besta tík, 11 mánaða!

Monza (Perluskins Endlessly Devoted) Besta tík tegundar,
Leone-Cane´sPrimo 3 besti rakki af 24.

Gaman að segja frá því að Mika varð Besti hundur sýningar á opinni sýningu deildarinnar.
Dóma má finna undir Show time.


Ulli


Ulli BIS Shih Tzu


Bertha 'Ta Maria Wot a Bee'




Elsku Max
3.10.2011
Með tár í augunum kvöddum við elskulegan Max okkar alltof snemma. Við söknum hans agalega sárt og hann skilur eftir sig stórt skarð sem seint verður fyllt uppí en eftir eru fullt af minningum um frábæran félaga og einn besta hund sem hægt er að óska sér ♥ ♥

5 deilda tvöföld sýning   16-17.04.2011 Dómarar Arne Foss and Hinrik Johannsson.
19.4.2011
Á tvöföldu 5 deildasýningunni sýdi Úlli sig og sannaðil! Hann vann báða dagana unghundaflokkinn með CK (meistaraefni) og varð 2 besti rakki undir Arne Foss, en það voru bara tveir sem komust áfram. Og hjá Henrik varð hann besti rakki tegundar og jafnframt sá eini sem komst áfram og endaði sem Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni með sitt annað meistarastig ! Dómarinn sagði um Úlla að hann væri frábær mover.

Úlli reyndar var með smá show fyrir áhorfendur. Hann neitaði að labba i keppninni um besta rakka á læaugardag og kepninni um besta hudn tegundar á sunnudag. Báðir dómararnir komu til mín og sögðu "Im so sorry, I really do like him".




Monza 'Perluskins Endlessly Devoted' systir hans Úlla vann báða dagana unghundaflokkinn með CK (meistaraefni)endaði svo BOB (besti hundur tegundar) og besta tík tegundar 2 í harðri samkeppni með meistarastig báða dagana! Ég er ekkert smá stolt af þessum ungu hundum!

Primo og stólveig voru rosa flott saman og varð hann báða dagana 2 í sínum flokki með CK og excellent! in Intermidiate class. Perluskins Tom Cruise afabarnið hans Antons varð was BOS undir Arne Foss með meistarastig, og Kelly (Prrluskins Grace to Paradise Passion) sonardóttir hans Antonar (hálfsystir Úlla) varð Besti hvolpur sýningar 1 á sunnudag og nr.2 á laugardaginn!

Dóma má sjá undir Show Time

Til hamingju PErluskins ræktun með flottan árangur um helgina! og takk öll fyrir samveruna og skemmtilega helgi.*
Special knús á Beggu, Úllu og Sólveigu
:)

Monza in BIS


Ulli


Cruz BOS under Arne Foss - Kelly BIS puppy


Finnland 1-4 april 2011 10.4.2011
Í byrjun apríl lá leið mín til Finnlands, með í för voru Inga og Einar sem eru fósturforeldrar Berthu :) Á laugardeginum hjálpuðum við til að snyrta hunda og á sunnudeginum fórum við á sérsýningu Shih Tzu og Tibet Terrier. Hjálpuðum til við að setja upp sýningunna enda nóg að gera, svo sýndi ég Wilmu (Ta maria Piece of Cake) óþekktarormin hennar Ullu og Símon (Multi Ch. Ta Maria Sugar Daddy) í Ta maria ræktunarhópnum sem varð BIS.

Rúsinan í pilsuendanum var svo að við hittum líka Berthu sætu sem er ekkert nema æðisleg. Svo falleg og skapgóð tík! Því miður var hún ekki nógu gömul til að komast í einangrun núna í apríl en hún kemur í maí og er tilhlökkunin mikil.

Það var bara frábært að vera hjá Ullu og hitta alla voffana hennar aftur, alltaf hægt að læra meira og meira.

Takk Inga og Einar fyrir frábæra og eftirminnilega ferð!!


Ég með Berthu og Inga með systur hennar. ..........................Við að knúsast með Wöndu drottningu og Wanessu hvolpaskott.


Sæta sæta Bertha Liv ................................................ .......Agalega stolt með "Simon" í Ta maria ræktunarhópnum.

Mika stigahæðsti Shih Tzu ársins 2010 ! 5.3.2011
Í gær hittumst við heima hjá Maju í jónsgeislanum þar sem stigahæðsti Shih Tzu ársins var tilkynntur og heiðraður. Það var engin annar en Mika! C.I.B* ISCH Ta Maria Beat The Fantasy. Ég tók stolt við viðurkenningu og fallegum farandgrip fyrir hönd Mika :)

Súper sýningarúrslit ! 27.2.2011



Fyrsta sýning ársins var 27 febrúar. Við áttum rosalega góðan dag og erum ekker smá stolt! Dómari var Ligita Zake frá Lettlandi.

Mika "ISCh Ta Maria Beat The Fantasy" varð annar besti rakki og fékk sitt síðasta CACIB þannig að núna er hann alþjóðlegur meistari!! Hann er 3 Shih Tzu hundurinn á landinu til að vinna þennan titil og er hann aðeins að verða 3 ára gamall!

Sprellarinn okkar hann Úlli "Perluskins Everyones Fantasy" vann sinn flokk (unghunda) með excellent og meistaraefni! Hann endaði sem 3 besti rakki tegundar með vara-CACIB!

OG síðast en ekki síst.... Leone-Canes Primo sonur Mika og Isseyar varð BESTI hundur tegundar með sitt fyrsta meistarastig! Innilega til hamingju Sólveig og Haraldur með prinsinn og Allý með ræktunina þína!

Höldum aðeins áfram...

Dóttir hans Mika hún Monza "Perluskins Endlessly Devoted" vann sinn flokk (unghunda) með excellent og meistaraefni! Endaði sem 3 besta tík!

Við sýndum afkvæma hóp, Mika ásamt 3 afkvæmum (Úlla, Primo og Monzu) og fékk hópurinn excellent og heiðursverðlaun! Við kepptum svo um besta afkvæmahóp dagsins og höfnuðum í 4 sæti.

Við skulum ekki gleyma barnabörnunum hans Antonar þeim Perluskins Tom Cruise sem vann opna flokkinn með excellent og meistaraefni og hafnaði sem 4 besti rakki tegundar. Donna, Perluskins Fasionably Dressed vann ungliðaflokkinn á sinni fyrstu sýningu með excellent og meistaraefni og endaði sem 5 besta tík tegundar

Svo var það Tumi (Tíbraar Tinda Tigurinn Tumi) sem ég sýndi fyrir pabba. 65 Labradorar voru skráðir og fékk hann exl. og varð í 5 sæti í opnum flokk.

TAKK fyrir frábæra helgi !!


Ljósmynd: Kristinn Grétarsson


Ljósmyndir: Emil Kristjánsson

Velkomin Bertha ! 11.2.2011
Já þið lásuð rétt! Hún Bertha er væntanleg til landsins með vorinu. Hún kemur frá Ta Maria ræktun í Finnlandi eins og Mika og er einlit gullin. Berta mun búa í góðu yfirlæti hjá Ingu og fjölskyldu í Mosfellsbænum ásamt Papillon tíkinni þeirra henni Lilju Líf. Hvað varðar framtíðarplön sambandi við ræktun á ættbók Berthu mjög vel bæði við ættbók Úlla og Mika. Hún er með marga virkilega fallega hunda á bakvið sig. Opinn, kát og skemmtileg tík sem er mjög mikilvægt i minum augum!

Í byrjun apríl liggur leið mín út að sækja skvísuna og fara á sérsýningunna hjá Shih Tzu í leiðinni. Með í för verða Inga og maðurinn hennar, Einar.

Hér
má sjá mynd af Berthu og systkinum hennar.

Spennandi tímar framundan!

Takk Inga og Einar fyrir að gera þennan draum að veruleika með mér :)
Einnig stórt takk til ræktenda Berthu og Ullu fyrir alla hjálpina

Frábært sýningarár 2010!! 29.11.2010
4 HRFÍ sýningar og 1 opin sérsýning að baki á árinu 2010. Mika gerði sér lítið fyrir og varð besti rakki tegundar á þeim öllum! Hann varð Íslenskur meistari á árinu, fékk 2 meistarastig, 3 CACIB, 2.bestur í grúppu, Besti hundur sýningar á opinni sérsýningu Shih Tzu, 2x exl. +heiðursverðlaun fyrir afkvæmahóp, átti besta afkvæmahóp sýningar. Alls 3xBOB og 2xBOS!

'Rísandi stjarnan' okkar hann Úllii... Hefur þrátt fyrir kátínu og óþekkt í hvolpa- og ungliðaflokki í ár gert það gott ;-) BOS-hvolpur hjá Espen Engh úr stórum hópi, Excellent á öllum 3 sýningunum í ungliðaflokki, varð junior class winner tvisvar, 2 sinnum annar besti rakki tegundar hjá virtum ST dómurum, fékk sitt fyrsta meistarastig og vara.CACIB og 2x í besta afkvæmahópi tegundar og í BIS afkvæmahóp.


Við erum afskaplega stolt af feðgunum!

Önnur afkvæmi strákanna gerðu það líka gott. Leone-Canes Primo Mikasonur varð besti hvolpur tegundar og annar besti hvolpur sýningar, 2 besti hundur sýningar úr hvolpaflokk á opinni sérsýningu Shih Tzu. Excellent á báðum sýningunum í ungliðaflokki. Vara.CC og 3 besti rakki. 2x í besta afkvæmahópi tegundar og í BIS afkvæmahóp.

Bangsi Antonsonur varð junior winner/2 besti rakki á opinni sérsýningu ST, 2 besti rakki í haust og fékk sitt fyrsta meistarastig. Bangsi hefur ávalt fengið Excellent!

Monza Mikadóttir varð BOB hvolpur hjá Espen Engh úr stórum hópi. junior winner og BOS á opinni sérsýningu Shih Tzu deildar, 2x junior winner með CK á HRFÍ sýningum!


Úlli, Mika og Monza

Sýningarúrslit ! 21.11.2010
Á alþjóðlegu hundasýningu HRFÍ 20.11.2010 varð Mika besti rakki tegundar og BOS með sitt þriðja CACIB (alþjóðlegt meistarastig)! Úlli var í essinu sínu og fékk excellent, meistaraefni og varð í fyrsta sæti í ungliðaflokki! Hann keppti við pabba sinn og varð annar besti rakki með meistarastig og vara CACIB! Þeir voru einu rakkarnir sem komust áfram með meistaraefni (CK). Dómarinn var hin virta Birgitta Svarstad frá Svíþjóð.

Mika var svo sýndur með þremur afkvæmum Úlla, Primo og Monzu og fékk hópurinn excellent og heiðursverðlaun og var því besti afkvæmahópur tegundar. Við fórum svo á rauða dregilinn og urðum besti afkvæmahópur sýningar á laugardeginum!

Hægt er að lesa dómana undir Show Time
. Fleiri myndir koma seinna!



Pabbi Mika og afi Ulla fær tvo nýja titla ! 10.10.2010
Í ferð hans til noregs á sýninguna í Hamar þar sem tæplega 70 Shih Tzu hundar voru skráðir, fagnaði Pepsi (NUCH SUCH FINCH NORDIC CH EJW-06 JV-06 FinV-07 FinV-09 Fossella The Beat Goes On) tveimur nýjum sýningartitlum, norskur- og norðurlanda meistari! Vel gert Ulla, María og Pepsi!


Við Mika sendum Pepsi hamingju óskir :-)

Frábær sýningarúrslit - 28.8.2010
Mika sýndi sig og sannaði enn og aftur og varð besti hundur tegunda með CACIB. Dómari var Jean Lenning, frá Bretlandi. Ég sýndi einnig afkvæma hóp, þá mika með þremur afkvæmum, þeim Úlla, PRimo og Aldo, sem fékk excellent og heiðursverðlun og var þvar með besti afkvæmahópur tegundar með frábæra krítik (Well balanced group for even type and quality)

Úlli fékk excellent og frábæra dóma í ungliðaflokki og endaði í 4 sæti, þrátt fyrir að vera pínu óþekkur :) En strákarnir voru báðir kátir og glaðir inní hring sem skiptir mig mestu!

Afkvæmi hundanna minna sýndu sig og sönnuðu en sonur hans Antons, hann Bangsi (Perluskns Do Ya Fell Lucky) was 2.besti rakki með meistarastig og Leone-Cane´s Primo was 3. besti rakki með vara-meistarastig
!

Super weekend, Thank you everyone for a great time and support around the ringsite! *Critics you can read under Show time!

Grein í finnska Shih Tzu tímaritinu 30.7.2010
Hér er ljósrit af grein sem ég var beðin um að skrifa í Finnska Shih Tzu kúbbs tímaritinu sem kom út núna í júní. Þetta er semsagt í grófum dráttum um finnsku strákana mína og þeirra afkvæmi og þegar að ræktandi Mika og góðvinkona mín hún Ulla kom í heimsókn til mín og sýndi Mika og lýsingin af þeirri heimsókn og sýningunni, svo neðst koma e-h staðreyndir um Shih Tzu á Íslandi.



Til hamingju með afmælið Max !!! 27.7.2010

Sæti bangsinn okkar hann Max (ISCh Shabanoun Mulberry) er 5 ára gamall í dag! TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN MAX!
Hann mun sannarlega eiga góða dag með uppáhaldinu hans.. góðum mat!

Video frá sýningunni 22.6.2010

Hér er video af Úlla mínum að vinna ungliðaflokkinn á sumarsýningunni. Videoin tók vinkona mín Kolbrún Edda, takk! Meiri video koma svo inn.

Svo fyrir neðan er hún Monza sæta, systir hans Úlla (undan Mika og Lottu) að vinna ungliðaflokkinn tíkur.


Síðast enn ekki síst. Kóngurinn sjálfur hann Mika í opnum flokki með Ullu sinni. Svo seinna keppni um besta rakka, en drengirnir minir voru þeir einu sem fengu CK. Ulli var orðin ansi þreyttur þarna eins og sést.. en hey! hann er bara 11 mánaða :)

Sumarsýning HRFÍ - Mika meistari! 8.6.2010

6.júní á sumarsýningu HRFÍ varð Mika besti rakki tegundar úr opnum flokki aðeins 26mánaða gamall með íslenskt meistarastig! Þetta var hans þriðja stig og er hann því orðin Íslenskur meistari!! Dómari var Paul Stanton frá Svíþjóð. Ulla, ræktandi Mika sýndi hann lista vel:) Mika er stigahæðsti Shih Tzu ársins eftir þessar tvær af fjórum sýningum ársins.

Ekki nóg með það heldur keppti Úlli minn í ungliðaflokki í fyrsta skifti og fékk excellent, varð í fyrsta sæti með meistaraefni! Endaði svo sem annar besti rakki á eftir pabba sínum, aðeins 11 mánaða gamall! ! Monza systir hans (Perluskins Endlessly Devoted) vann ungliðaflokkinn og varð 3 besta tík tegundar!! Svo ekki má gleyma Leone-Cane´s Primo BOS hvolpi, og Elmo og Biöncu sem voru í 2 og 3 sæti!




Opin Shih Tzu sýning - Mika besti hundur sýningar!
8.6.2010

3 júní 2010 var haldin fyrsta opna sýning fyrir Shih Tzu á Íslandi. Dómarinn var virtur, Annukka Paloheimo frá Finnlandi. 35 Shih Tzuar tóku þátt þar af 11 klipptir hundar, en sér flokkur var fyrir þá. Mika varð besti rakki tegundar, besti hundur tegundar og Besti Shih Tzu hundur sýningar!! Dóttir hans Monza (Perluskins Everyone´s Fantasy) varð besta tík tegundar aðeins 11 mánaða gömul! Bangsi (Perluskins Do Ya Feel Lucky), sonur hans Antons varð 2 besti rakki tegundar! Leone-Canes Bianca varð besti tíkarhvolpur og Leone-Canes Primo Besti hvolpur tegundar og 2 besti hundur sýningar!



Sámur
7.4.2010
Í nýjasta tölublaði Sáms 1.tbl 2010 er viðtal við dómarana eftir sýningunna. Ég er að sjálfsögðu mjög ánægð með þau orð sem Espen Engh frá Noregi, segir um Mika og þessvegna læt ég þau fylgja hér:

Tegundarhópur 9 mjög sterkur. Espen dæmdi margar tegundir í tegundahópi 9 og sagðist sérstaklega hrifinn af besta hundi tegundar í Shih Tzu sem minnti hann á marga af þeim fallegu sænski Shih Tzu hundum sem hann hefur dæmt í gegnum tíðina.


Bianca! 24.4.2010

Bianca Mikadóttir 7 mánaða gömul að standa fín hjá ömmu sinni :) Hlökkum til þess að fylgjast með þessari lofandi stelpu í sýningarhringnum í framtíðinni! Sem og fleiri lofandi hvolpum sem við erum svo montin með undan strákunum :)

Video frá febrúar sýningunni af Úlla og Mika 12.4.2010
Tekið af Kollu. Strákarnir minir svo flottir.






Alþjóðleg sýning 27-28 febrúar 1.3.2010
B-2, BHT-1, CACIB, CC

ÞVÍLÍK HELGI! Og góð byrjun á sýningarárinu! Dómari Espen Engh frá Noregi.
Mika varð besti hundur tegundar, með meistarastig og CACIB sýndur lista vel af Ullu, ömmu sinni! Ég sýndi hann svo í grúppunni þar sem hann endaði í öðru sæti í tegundarhóp 9!

Úlli litli varð besti rakka hvolpur tegundar 6-9 mánaða með heiðursverðlaun, þrátt fyrir að vera með hvolpakjána læti inn í hringum! Hann keppti svo við systur sína hana Monzu flottu um besta hvolp tegundar og leyfði dömunni að verða fyrst og endaði sem annar besti hvolpur tegundar.

'(Perluskins Do you Feel Lucky), Bangsi undan Anton og Rut varð 2 sæti á eftir frænda sínum Úlla í eldri hvolpa með heiðursverðlaun! Svo var Marco (Perluskins Ever So Handsome), bróðir Úlla númer 4.

Leone-Canes Primo varð svo besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða
og 2. BESTI hvolpur sýningar!!
Leone-Canes Elmo var númer tvö á eftir bróður sínum, og aldo var númer 6, en með flottan dóm sem sagði hann eiga góða mögleika þegar hann hættir að vera svona gelgjulegur :P
Leone-Canes Bianca var 2 besti tíkarhvolpur með heiðursverðlaun!

Ég þakka ykkur kæru vinir, stuðninginn við hringinn :)

Öll úrslitin og fleiri myndir hér

Umsögn Mika
Excellent type + quality. Very masculin + substantial. Typical broud scull.
Big round dark eyes. Excellent nose placement + width
Strong neck and excellent topline.
Well set and carried tail.
Deep body.
Beautiful coat + presentation.
Excellent representative of breed + sex.

Umsögn Úlla
7 months old male.
Substantional and low to the ground.
Well round scull. Big round dark eyes.
Exellent nose placement.
Could do with more coat around the eyes. excellent forchest.
Well angulated front. Deep and capalious body. This time a little high behind.
Moves with typical flick-up.


Primo
Primo

Ekki aðeins fegurð...! 12.01.2010
Úlli kláraði hvolpaskóla HRFÍ með einkuninna úr verkelga prófinu 9! Hann var meðal þeirra hæðstu í sínum hóp.
Mamma hans var lika dugleg og fékk 9 í bóklega prófinu :) Bestastur hann Úlli finnst þetta obbolega skemmtileg að læra svona!
Hann er að þroskast einkar vel drengurinn eins og sjá má á myndinni fyrir neðan tekna af honum 6 mánaða gömlum.



 
 
 

Anja Björg Copyright 2010