Tvær sýningar í júní!
8.06.2010
Opin sýning Shih Tzu deildar 3.6.2010
Opin sýning Shih Tzu deildar var haldin í Garðheimum í fyrsta skipti og voru 35 hundar skráðir til leiks! Allar stelpurnar okkar voru skráðar og allir hvolparnir frá okkur.
Leone-Cane´s Primo varð besti hvolpur tegundar og besti hundur sýningar-2!
Leone-Canes Bianca varð besti tíkarhvolpur tegundar!
Leone-Canes Aldo nr. 2
Leone-Canes Elmo nr. 3
Viola-Hirtas Issey Miyake var besta tík í opnum flokki og 2 besta tík tegundar!
ISCh Gullroða Lucia Suri varð svo besta tík tegundar í Freestyle flokki!!
Pabbi hvolpanna okkar, Mika (ISCh Ta Maria Beat The Fantasy) varð svo besti hundur sýningar!

Sumarsýning HRFÍ 6.6.2010
Dómari var Paul Stanton frá Svíþjóð. Leone-Canes Primo, varð besti rakkahvolpur á þriðju sýningunni í röð og endaði sem annar besti hvolpur tegundar með heiðursverðlaun!


Uppstillimyndir af mæðgunum 24.04.2010
Hér eru uppstillimyndir sem ég tók af mæðgunum Issey og Biöncu, flottar ! :)
Þær eru báðar skráðar á sumarsýninguna dömurnar.

Dómurinn hennar Biöncu frá Espen Engh
5 month old strong + feminine bitch
pleasing type + quality.
Attractive head. well pleaced found eyes.
good width, moderale nech + front angulation.
Deep + strong body.
Wold not like longer, than this.
Good tailset. Preferme more angil behind.
moves well coming and going from the sites

Vorið er komið ! 5.04.2010
Loksins er sólin hærra á lofti og vor í lofti. Vegna anna hef ég ekki uppfært síðuna mikið undanfarið en það verðru breyting þar á með hækkandi sól. Ég set hér inn nokkrar nýjar myndir af Shih Tzu skvísunum okkar! En við erum voðalega ánægð með að sjá hvernig að Bianca er að þroskast vel.



Úrslit sýningarinnar 27.02.2010
Þá er sýningunni lokið og erum við mjög ánægð með árangur helgarinnar! Dómarinn var Espen Engh frá Noregi
Leone-Canes Bianca okkar var annar besti tíkarhvolpur 4-6 mánaða með heiðurverðlaun og mjög fínan dóm!
Leone-Canes Primo var besti hvolpur tegundar 4-6 mánaða og 2 besti hvolpur sýningar!!!
Leone-Canes Elmo varð annar besti rakkahvolpur
4-6 mánaða með heiðursverðlaun
Leone-Canes Aldo varð í 6 sæti.
Viola-Hirstas Issey Myiake varð sýnd í opnum flokki með Very Good .
Pabbi hvolpanna, Mika varð svo besti hundur tegundar og annar í grúppu!

Við erum ekkert smá stolt af okkar ræktun! Allir með flotta dóma!! Til hamingju Sólveig, Sara Líf og Inga!
Fleiri myndir hér!

Sýning framundan 27-28 feb.18.02.2010
Bianca fer á sína fyrstu sýningu hún er skráð í hvolpaflokki 4-6 mán.
Allir hvolparnir í gotinu frá mér eru skráðir til leiks ásamt mömmu þeirra,
hlökkum mikið til og auðvitað koma myndir inn á síðuna.

Elmo, Bianca, Aldo og Primo:)

Gleðilegt nýtt ár! 6.1.10
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs! Af hvolpunum er allt gott að frétta og gengur vel með þá hjá nýjum eigendum :o)

Leone-Canes Bianca í desember.

Primo fluttur að heiman 28.11.09
Primo er fluttur að heima og býr í grafarvoginum í góðu yfirlæti hjá þeim Sólveigu og Haraldi. Til hamingju með prinsinn!

Ný vefsíða Leone Canes Opnuð! 26.11.09
Velkomin á heimasíðuna okkar. Hér getur þú
framvegis fylgst með skvísunum Biöncu, Issey og Suri.

Um heimasíðugerð sá Anja Björg Kristinsdóttir.

Aldo og Elmo er farnir á nýju heimilin sín 5.11.09

þá er fyrsti hvolpurinn farinn að heiman hann Aldo en
hann ætlar að flytja til Reykjanesbæjar til Ingu,Bjössa
og Morgan sem er Shih Tzu hundur.
Við eigum nú eftir að hitta Aldo mikið hjá Ingu
og Bjössa enda góðir vinir okkar

Elmo var númer tvö í röðinni að flytja og býr í góðu yfirlæti hjá Söru Líf og fjölskyldu.
Hann er þeirra fyrsti Shih Tzu, en annar hundur og eiga Sara og Elmo eflaust eftir að eiga margar skemmtilegar stundir saman
Til lukku með hvolpanan ykkar!
4 yndislegir hvolpar fæddir
3 rakkar og 1 tík komu í heiminn 08.09.09. Móðir er Viola-Hirtas Issey Miyake og faðir Mika Ta Maria Beat The Fantasy. Skemmtileg ættbók sem hefur að geyma gömlu skandinavísku línurnar. Við erum spennt að sjá hvernig að þessir hvolpar eiga eftir að þroskast og dafna. Sjá nánar undir Hvolpar.
|